Gervigreind fyrir byrjendur 50+ 6. okt
Lærðu að nýta gervigreindina til að einfalda lífið, spara tíma og fá meira út úr tækninni sem öllu tröllríður þessa dagana.
Gervigreind er orðin öflugt verkfæri fyrir okkur öll – ekki bara fyrir tölvunörda eða fólk sem vinnur við tækni.
Þetta 6 klukkustunda hagnýta námskeið er fyrir fólk 50 ára og eldra sem vill kynnast gervigreind á einfaldan, skemmtilegan og gagnlegan hátt.
Námskeiðið hentar algjörum byrjendum jafnt sem þeim sem eru aðeins farnir að fikra sig áfram með ChatGPT og önnur gervigreindartól.
Hvað getur þú gert með gervigreind?
• Skipuleggja ferðalag og finna áhugaverða staði, veitingastaði og afþreyingu
• Fá hjálp við að finna og bera saman upplýsingar um nánast hvað sem er
• Skipuleggja gönguferðir, æfingar og áhugamál
• Fá hugmyndir að æfingum til að bæta golfið ⛳
• Greina golfsveifluna þína, tölfræði og TrackMan-upplýsingar
• Fá hugmyndir að uppskriftum og matseðlum úr því sem þú átt til í ísskápnum
• Skipuleggja matarboð, veislur og aðrar uppákomur
• Þýða texta og eiga auðveld samskipti á erlendum tungumálum
• Skilja flókin hugtök, fréttir eða upplýsingar á einfaldan hátt
• Taka myndir, láta gervigreindina greina þær og fá hugmyndir út frá þeim
• Hjálpa við að skipuleggja daginn, vikuna eða næstu ferð
• Finna nýjar hugmyndir að áhugamálum og hlutum sem þig langar að prófa
• Svara spurningum sem þú hefur alltaf verið forvitinn um
• Og einfaldlega spjalla við gervigreindina og sjá hvað hún getur gert fyrir þig
Þú lærir líka hvernig best er að spyrja gervigreindina svo svörin verði gagnleg og nákvæm – og hvernig þú getur metið hvort upplýsingarnar sem hún gefur þér séu áreiðanlegar.
📚 6 klukkustunda námskeið
Námskeiðinu er skipt í tvo 3 klukkustunda hluta,
Þriðjudaginn 6. okt og miðvikudaginn 7. okt
kl. 16:00–19:00.
Námskeiðið er kennt á Símey
Við vinnum með raunveruleg dæmi og prófum hlutina sjálf, þannig að þú ferð ekki bara heim með einhverja fræðilega þekkingu – heldur með tæki sem þú getur byrjað að nota strax.
Engin sérstök tölvuþekking er nauðsynleg.
Hvort sem þú ert að undirbúa næstu ferð, vilt bæta golfið, ert forvitinn um eitthvað sem þú hefur verið að velta fyrir þér eða vilt einfaldlega kynnast þessari nýju tækni betur, þá er þetta námskeið fyrir þig.
🚀 Gervigreindin er komin til að vera.
Kennari Vilberg Helgason
Komdu og lærðu að nota hana á þínum forsendum.

