Gervigreindin fyrir Iðnaðarmenn 3. & 4. mars Image

Gervigreindin fyrir Iðnaðarmenn 3. & 4. mars

Gervigreindin fyrir Iðnaðarmenn 3. & 4. mars

Lærðu að nýta þér gervigreind í þínum störfum - Kennt á Símey Akureyri

Hagnýtt og aðgengilegt 6 klst. námskeið um gervigreind fyrir iðnaðarmenn, með áherslu á spunagreind (t.d. ChatGPT) og raunveruleg notkun í daglegum störfum. Farið er í hvernig hægt er að spara tíma, bæta skipulag, einfalda samskipti við viðskiptavini, skrifa tilboð og skýrslur, leysa vandamál og fá hugmyndir – án þess að þurfa tæknilegan bakgrunn. Námskeiðið er praktískt, dæmadrifið og miðað að því að þátttakendur geti byrjað að nýta gerðigreind strax.


Eftir námskeiðið geta þátttakendur m.a.:


  • Sparað tíma í skrifræði og undirbúningi
  • Skrifað tilboð, reikninga og verklýsingar hraðar
  • Útbúið skýr og fagleg samskipti við viðskiptavini
  • Fengið hugmyndir að lausnum þegar verk eru flókin eða óljós
  • Undirbúið verk, efnislista og verkáætlanir
  • Leyst algeng vandamál með hjálp spunagreindar
  • Nýtt gervigreind sem „aðstoðarmann“ í daglegu starfi



Farið verður sérstaklega í:


  • Hvað spunagreind er – útskýrt á einföldu máli
  • Hvernig á að spyrja „réttu spurningarnar“ (prompting)
  • Dæmi úr raunverulegum iðnaðarverkefnum
  • Hvernig má forðast algeng mistök
  • Öryggi, trúnaður og skynsamlega notkun



Ath að hægt er að sækja um endurgreiðslu á námskeiðinu frá stéttafélögum og svo hafa fyrirtæki verið dugleg að greiða fyrir námskeið starfsmanna sinna. Munið að setja inn ef greiðandi er annar en þátttakandi í skráningarferlinu.


📅 Dagsetning: 3.. og 4. mars. í staðnámi

⏰ Tími: Kl. 16:00 – 19:00

📍 Staðsetning: Símey, Þórsstíg 4

⏳ Lengd: Samtals 6 klukkustundir

Kennari: Vilberg Helgason

Verð: 29990

Skrá mig